20. maí 2008 klukkan 23:47
Ég var svo viss um að enginn nenti að lesa þetta blogg rugl mitt. En svo bara eru þó nokkrir búnir að vera að skamma mig fyrir það að ég skuli ekki blogga. En hey ef þið viljið að ég bloggi þá verðið þið kannski líka að kvitta af og til og ýta eftir því hjá mér því annars stend ég í þeirri meiningu að enginn lesi þetta sem ég held samt ennþá.
En ég hef bara verið veik, slöpp og löt og ekki nennt að blogga. Var eitthvað að spá í að fara kannski bara í þetta myspace dæmi og er búin að stofna síðuna en úff æj ég held ég nenni því ekki. Er varla að nenna þessu bloggi og svo er maður með Facebook og trilljón netföng til að fara í gegnum og svo auddað msn-ið og bara nó að gera. Þarf ekkert að vera að bæta þessu mæspeisi inn líka.
En já ég var heima mest allavikuna í síðustu viku og díses ég var svo að krebera á sjálfri mér að ég ákvað að fara í vinnuna á föstudeginum til að halda kannski geðheilsunni. Hefði svosem átt að sleppa því. Var í raun bara hálf þann dag bæði í skólanum og bankanum.
Svo var óvissuferð með blakinu frá laugardegi til sunnudags. Ég eins og svo oft áður var í skipulagsnefndinni ásamt Birgittu. Stefndum liðinu í Nesbúð sem er hótelið á Nesjavöllum. Þar var farið í nokkra leiki úti og svo fluttum við okkur innfyrir, fengum okkur smá að borða og svo var spilað trivial nýja afmælisútgáfan. Komumst að því að Jóna er ofvitinn í hópnum, hún vissi nánast allt. En það sem hún vissi ekki vissi Hrafnlaug. Síðan var farið í pottinn. Auðvitað var aðeins fengið sér neðan í því allt frá því mætt var rétt eftir hádegi. En já eftir pottinn var svo borðaður kvöldmatur.
Ég, Jóna, Björg, Kolla og Steinunn ákváðum að fá okkur smá göngutúr eftir matinn. Steinunn náði alveg út bílaplanið, þá var henni orðið kallt og ákvað að fara inn. Kolla komst út að læknum þar sem hún óð út í. En lækurinn var heitur og því ekki svo slæmt að vaða aðeins í honum. En eftir það snéri hún við. Við hinar þrjár héldum aðeins áfram og komum hressar og ferskar til baka. Þá voru hinar í sannleikanum og kontor. Held bara að ég hafi ekki farið í þann leik síðan í tröppunum upp á háaloft hjá Steinunni þegar hún bjó á Flókó með henni og Jóni (minnir að hann heiti Jón) þegar við vorum úff 11 eða 12 ára ef svo gamlar :/
Ég byrjaði aðeins í þessu með þeim en ákvað síðan að draga mig út og fara í pottinn aftur ásamt nokkrum öðrum. Held ég hafi verið í pottinum í amk 2 tíma ef ekki hátt í 3-4 tíma. Kjöftuðum úr okkur allt vit og skemmtum okkur þvílíkt vel.
En já þessi vika er bara nokkuð busy. Gærkvöldið var nú bara rólegt og þægilegt í sófanum heima. Í kvöld fór ég beint úr vinnunni til Völu og horfði á fyrri undankeppnina í júróvisjón með henni og Einari Inga syni hennar. Mjög gaman :)
Á morgunn ætla ég að horfa á úrslitaleik Man. Utd og Chelsea í Meistaradeild Evrópu hjá Báru og Ingunni og held ég að Steinunn og Kolla og Helga og Jóna verði þar líka. Bara gaman.
Svo á fimmtudaginn er seinni undankeppni júróvisjón og er Ísland þar. Ég verð að vinna á barnum í samtökunum þetta kvöld og ætla ég að reyna að opna húsið fyrir 7 svo hægt sé að horfa á þetta þar saman í góðum hóp. Er að vinna í bankanum en vonast til að ná þó að klára að ganga frá þar og komast niðreftir í tíma. Er að reyna að tæla fólk til að koma og horfa á þetta með mér þar.
Ekkert plan er hjá mér fyrir föstudaginn en aftur á móti er laugardagurinn fullbókaður :)
Fyrst er trúnaðaráðsfundur í samtökunum frá 10-15 að mig minnir. Um kvöldið er svo júróvisjón partý hjá Helgu og Jónu og svo framhald í samtökunum. Eftir það er allt opið.
Sunnudagurinn er planaður í leti. Ef gott er í veðri þá væri nú sniðugt að slá kannski bara blettinn en ætla að sjá til með það. Kemur bara í ljós.
En jæja þá ætla ég að fara að sjússa mig einn sjúss í viðbót (af hóstasaftinu) og koma mér svo kannski bara í bólið. Vita hvort ég nái einhverjum svefni þessa nótt með lágmarks hósta og lágmarks svitaköstum. Þar til seinna.